top of page
Marsibil Sól Þórarinsdóttir Blöndal og Salóme Hollanders
Saga íslenskra sjókvenna varð undir í almennri þjóðarsögu, þar sem karlmennska og hetjudáðir voru í forgrunni. Í gegnum aldirnar hefur saga sjómennsku á Íslandi verið skrifuð í nafni karla. En í skugga sögunnar leynast óteljandi frásagnir kvenna sem störfuðu við sjóinn, sem fiskverkakonur, útgerðarkonur, róðrakonur og veiðimenn. Þær stóðu við hlið feðra, bræðra og eiginmanna, þoldu kuldann, þreytuna og hörku náttúrunnar en nöfn þeirra hurfu úr frásögnum.

bottom of page